Um Ístækni

Áreiðanleiki, nýsköpun og 40 ára reynsla í þjónustu við sjávarútveg.

Um okkur

Hugmyndin að stofnun Ístækni vaknaði á haustmánuðum 2023. Ístækni ehf er stofnað af fyrirverandi starfsmönnum 3xTechnology ásamt öðru áhugasömu fólki. Hópurinn sem stendur að Ístækni vill standa vörð um þá þekkingu og reynslu sem er til staðar á Ísafirði við að búa til og framleiða tæki fyrir sjávar og matvælaiðnað. Fljótlega eftir að hugmynd um stofnun Ístækni kom upp var ákveðið að bjóða Vélsmiðjunni Þristi á Ísafirði að vera hluti af Ístækni. Vélsmiðjan Þristur hefur þjónað sjávariðnaðinum á Vestjörðum í 40 ár og hefur getið sér gott orð fyrir að vera frábært þjónustufyrirtæki. Um síðustu áramót varð Vélsmiðjan Þristur hluti af Ístækni ehf. Hjá Ístækni ehf starfa um 23 starfsmenn við framleiðslu og þjónustu og skiptist starfsemin í megin atriðum í renniverkstæði, tæknideild, rafbúnaðardeild, framleiðsludeild, þjónustudeild og söludeild. Ístækni á til frábærar lausnir sem snúa að sjálfvirkni í karakerfum, kælingu, uppþýðingu, dælingu og flutningi á vörum fyrir vinnslur, ásamt lausnum fyrir millidekk í skipum. Ístækni vill halda í þau gildi að skila sem bestum árangri fyrir viðskiptavininn, að gera vandaða framleiðsluvöru og veita frábæra þjónustu.

Sagan okkar

1986

Þristur stofnað með það að markmiði að þjónusta sjávarútveg á Vestfjörðum.

1994

3X Stál stofnað. Í upphafi byggði starfssemi fyrirtækisins á hönnun og framleiðslu á búnaði úr ryðfríu stáli og þjónustu við sjávarútvegsfyrirtækin, einkum rækjuverksmiðjurnar, á Ísafirði og nágrenni.

2007

3X Stál verður 3X Technology með aukna áherslu á erlenda markaði, einkum Evrópu.

2014

Skaginn kaupir 3X Technology.

2018

Skaginn3X stofnað.

2020

BAADER kaupir Skaginn3X.

2023

Ístækni ehf stofnað og kaupir framleiðslubúnað, gagna og vörugrunn 3X Technology af Skaginn3X. 1. Desember 2023 hefur Ístækni formlega starfsemi.

2024

Þristur gerist hluti af Ístækni 1. janúar. Ístækni gerir sína fyrstu erlendu sölu 15. apríl. Sölu og þjónustuskrifstofa opnuð í húsi Sjávarklasans í Reykjavík 1. ágúst.

Aðstaða

Framleiðsluaðstaða

  • • CNC vélavinnsla
  • • Rafskápagerð
  • • Suðuverkstæði
  • • Samsetningaraðstaða

Vottanir

  • • Matvælaöryggi
  • • Sjávariðnaðarstaðlar
  • • Umhverfisstaðlar
  • • Gæðavottanir

Starfsmenn

Jóhann Bæring Gunnarsson

Jóhann Bæring Gunnarsson

Framkvæmdastjóri

Guðni Ólafur Guðnason

Guðni Ólafur Guðnason

Fjármálastjóri

Sigurður Freyr Kristinsson

Sigurður Freyr Kristinsson

Sviðsstjóri rafbúnaðar

Sigurður J Hreinsson

Sigurður J Hreinsson

Sviðsstjóri tæknideildar

Kristinn Mar Einarsson

Kristinn Mar Einarsson

Innkaupastjóri

Róbert Sigfússon

Róbert Sigfússon

Deildarstjóri Þjónustu

Ragnar Ingi Kristjánsson

Ragnar Ingi Kristjánsson

Vélhönnuður

Stefán Rósinkrans Pálsson

Stefán Rósinkrans Pálsson

Rafmagns & Tölvu verkfræðingur

Halldór Magnússon

Halldór Magnússon

Yfirverkstjóri

Viltu vera hluti af teyminu?

Við leitum alltaf að hæfileikaríkt fólki til að bæta við teymið okkar.

Sækja um starf